Dagþjónustustefna
Dagþjónustustefna Áss styrktarfélags 2008 – 2015 er að fólk með þroskahömlun fái fjölbreytta einstaklingsmiðaða þjónustu og að veittur sé til þess stuðningur, eftir því sem við á hverju sinni. Meginstefnan er að veita heilsdagsþjónustu eftir óskum/þörfum hvers og eins. Unnið sé stöðugt að því að bæta og endurskoða þá þjónustu sem veitt er, til að gera hana enn markvissari og skilvirkari.
Dagþjónustan miði að því að velferð og sjálfræði sé virt í hvívetna þar sem einstaklingurinn njóti virðingar, búi við jafnrétti og samskipan í þjóðfélaginu.
Í stefnunni felst að:
• Dagþjónustan sé breytileg eftir því hvaða aldurshópi er verið að þjóna.
• Alltaf sé horft á þarfir hvers og eins og þeim mætt.
• Stöðugt skuli hugað að þróun þjónustu til almennrar samfélagsþátttöku.
• Dagþjónustustaðir félagsins séu í stöðugu endurmati.
• Horft skuli út fyrir veggi þjónustustaða við ákvörðun á þjónustutilboðum.
• Hafa opið hús einu sinni á ári á öllum dagþjónustustöðum.
• Að veita heildstæða heilsdagsþjónustu sem innifelur m.a. þjálfun, afþreyingu, tómstundir og vinnuþjálfun, óháð staðsetningu.
• Að þjónustuþegar geti valið um fleiri en einn þátt þjónustu. Geti farið á milli starfsstöðva, þar sem þjónustan er veitt, s.s. að velja sér tilboð í samræmi við óskir og þarfir.
• Að tekin séu þjónustuviðtöl við hvern og einn með reglulegu millibili.
• Í boði sé sem allra mestur fjölbreytileiki svo allir finni eitthvað við sitt hæfi.





