Beint á leiðarkerfi vefsins
ÁS STYRKTARFÉLAG

Fjárhags- fjármuna- og rekstrarstefna

Fjárhags-, fjármuna- og rekstrarstefna Áss styrktarfélags 2008 - 2015 er að sýna  ráðdeild í einu og öllu. Utanumhald fjármála í þjónustu, verkefnum og framkvæmdum sé skilvirkt, rekjanlegt og gagnsætt.  Að þjónustusamningar hverskonar séu félaginu ekki fjárhagslega íþyngjandi. Ráðstöfun fjármuna félagsins skal byggjast á meðvitaðri ákvarðanatöku af til þess bærum aðilum, ígrunduðum ástæðum, og skilgreindri þörf fyrir þjónustu og verkefni. Félagið hafi öfluga sjóði til að mæta áföllum.

 

Í þessu felst:


• Að reksturinn samkvæmt þjónustusamningi við ríkið standi undir sér.
• Að tryggja sem besta þjónustu fyrir það fjármagn sem til ráðstöfunar er.
• Að allir þættir rekstursins eru í höndum og á ábyrgð framkvæmdastjóra sem ráðinn er til þess af stjórn þess og ábyrgur gagnvart henni.
• Að meta fjármagnsþörf hverrar starfsstöðvar samkvæmt þjónustuþörf, hvort sem er til hækkunar eða lækkunar.
• Að forstöðumenn séu meðvitaðir um hvar og hvernig kostnaður  verður til og beri ábyrgð á sértækum fjárhagsáætlunum sem unnar eru í samráði þeirra og framkvæmdastjóra.
• Að gera alla rekstrar- og framkvæmdaþætti gegnsæja.
• Að gerðar séu trúverðugar rekstrar- og framkvæmdaáætlanir, sem öðlast gildi með samþykki stjórnar og sé framfylgt.
• Að eftirfylgd og eftirlit sé framkvæmt með virkum jákvæðum hætti.
• Að fjármunir félagsins séu undir virku eftirliti, unnið að markvissum endurbótum fasteigna og ábyrgri ávöxtunarstefnu lausafjár, sem og verðbréfa.
• Að stöðugt sé leitað leiða til að bæta við fjáröflunarleiðir félagsins auk þess að viðhalda til vaxtar þeim sem fyrir eru.
• Að þjónustusamningur félagsins við ríkið tryggi því það fjármagn sem um er samið á hverjum tíma, sem þýðir t.d. að fjárhagslegar breytingar í rekstrarumhverfinu, eins og: launahækkanir, verðlagsþróun, aukin krafa um þjónustu og þyngd hennar,  komi sem viðbót á samninginn eftir því sem við á.
• Leggi félagið þjónustusamningnum til fé sé það samkvæmt bókun stjórnar.

Prentvæn útgáfa (PDF)


Stjórnborð

Texti í sjálfgefinni stærðTexti í miðlungs stærðTexti í stórri stærðAuðlestrarhamur English

Flýtileiðir