Fjölskyldustefna
Fjölskyldustefna Áss styrktarfélags 2008 – 2015 er að fólk geti samhæft vinnu og þarfir fjölskyldu á sem farsælastan hátt til hagsældar fyrir alla aðila. Fjölskyldustefnan stuðli að auknum lífsgæðum starfsmanna, ánægju, þjónustulipurð þeirra og trúmennsku við félagið.
Í því felst meðal annars:
• Að stuðla að samveru og samheldni fjölskyldna.
• Að möguleiki sé á flutningi milli starfa ef starfsmaður óskar þess vegna fjölskylduaðstæðna.
• Að félagið sýni starfsmanni skilning í erfiðum fjölskylduaðstæðum.





