Fræðslustefna
Fræðslustefna Áss styrktarfélags 2008 - 2015 er að starfsfólk hafi aðgang að sí - og endurmenntun. Fræðslan sé skipulögð og leiði af sér meira sjálfstraust og sjálfstæðari vinnubrögð. Hagsmunir starfsmannsins og vinnuveitanda skulu fara saman að þessu leyti, báðum til góðs.
Fræðsla í boði er m.a.:
• Nýliðafræðsla.
• Fræðsla sem beint er til ákveðinna starfsmannahópa.
• Reglubundin námskeið í skyndihjálp einnig á léttlesnu máli.
• Fræðsla fyrir stjórnendur.
• Fræðsla á starfsdögum þjónustustaða og búsetu.
• Fræðsla á starfsmannafundum eftir því sem við á.
• Fræðsludagur fyrir sumarafleysingafólk.
• Vettvangsferðir með það að markmiði að starfsfólk kynnist öðrum vinnustöðum og efli samvinnu.
• Annað sem þörf er á hverju sinni.





