Beint á leiðarkerfi vefsins
ÁS STYRKTARFÉLAG

Gæðastefna

Gæðastefna Áss styrktarfélags 2008 – 2015 er að öll þjónusta þess sé einstaklingsmiðuð og byggi á viðurkenndri hugmyndafræði. Þjónustunni sé viðhaldið með sífelldri þekkingarleit. Fræðsla til starfsmanna, þjónustuþega og aðstandenda skal vera með kerfisbundnum hætti og virkri upplýsingagjöf.


Í þessu felst m.a.:

• Fjárhagslegt heilbrigði ásamt lítilli yfirbyggingu.
• Virkt stjórnskipulag.
• Stuttar boðleiðir.
• Skýr markmið, samkvæmt  stefnum félagsins sem byggja á grunngildum þess.
• Starfsemi og þjónusta félagsins tekur mið af þörfum hverju sinni.

Skilgreining á gæðum:

• Andleg og líkamleg velferð einstaklings í þjónustu.
• Ánægja byggð á hugmyndafræði. (Normalisering, full þátttaka og Wulfensberger).
• Að fá þá þjónustu sem þú vilt/ert ánægð með.
• Vel unnar og virkar stefnur, í sífelldri endurskoðun. (Flestir komi að þessu)
• Fjárhagslegt heilbrigði.
• Kerfisbundin og virk upplýsingagjöf og öflun(samskipti og tjáskipti)
• Viðhald þekkingar – allra hópa.
• Stuttar boðleiðir.

Prentvæn útgáfa (PDF)


Stjórnborð

Texti í sjálfgefinni stærðTexti í miðlungs stærðTexti í stórri stærðAuðlestrarhamur English

Flýtileiðir