Beint á leiðarkerfi vefsins
ÁS STYRKTARFÉLAG

Gildi og framtíðarsýn

Gildi:


• Að virða sjálfræði og stuðla að velferð einstaklinga í stóru og smáu.
• Að gefa fólki með þroskahömlun kost á að lifa sambærilegu lífi við aðra í samfélaginu og veita þeim stuðning til þess eftir því sem við á hverju sinni.
• Að sýna og sanna að fólk með þroskahömlun njóti virðingar, búi við jafnrétti og samskipan í þjóðfélaginu og fái fjölbreytta einstaklingsmiðaða þjónustu.
• Að vera framsækið og traust félag í þjónustu við fólk með þroskahömlun og aðstandendur þeirra.


Framtíðarsýn:


• Að vera til staðar og stuðnings með það markmið í huga að fólk með þroskahömlun njóti sömu réttinda og aðrir borgarar á Íslandi.
• Að bjóða fjölbreytta þjónustu eftir því sem við á hverju sinni og hafa frumkvæði að nýjungum.
• Að vera frumkvöðlar í að bæta og endurnýja þá þjónustu sem er til staðar og gera hana enn markvissari og skilvirkari.
• Að bregðast fljótt við þegar breytingar verða í ytra umhverfi og gera viðeigandi breytingar á innra formi og skipulagi.


Prentvæn útgáfa (PDF)

 


Stjórnborð

Texti í sjálfgefinni stærðTexti í miðlungs stærðTexti í stórri stærðAuðlestrarhamur English

Flýtileiðir