Beint á leiðarkerfi vefsins
ÁS STYRKTARFÉLAG

Heilsustefna

Heilsustefna Áss styrktarfélags 2008 - 2015 er að heilbrigði á sál og líkama sé haft að leiðarljósi í allri vinnu hjá félaginu og skilningur á að heilsan sé ein aðalforsenda þess að geta tekið virkan þátt í samfélaginu. Að ástundun heilbrigðs lífsstíls og lífshátta sé sjálfsagður og eðlilegur þáttur í starfseminni “Góð heilsa er gulli betri”.


Heilsustefna Áss styrktarfélags á m.a.:


• Að efla vitund fólks um mikilvægi góðrar heilsu líkamlega og andlega.
• Að leggja áherslu á að bjóða upp á fjölbreytta hreyfingu við allra hæfi jafnt innan dyra sem utan, allt árið.
• Að efla vitund fólks um mikilvægi holls mataræðis.
• Að efla sjálfsmynd, sjálfsvitund og virðingu.
• Að leggja áherslu á að allir séu virkir þátttakendur í samfélaginu.
• Að leggja áherslu á allt almennt hreinlæti.
• Að stuðla að því að fólk hafi aðgang að almennri læknisþjónustu.
• Að stuðla að því að fólk hafi aðgang að sundi, sjúkra- og iðjuþjálfun eftir því sem þörf krefur.
• Að ein vika á ári verði tileinkuð heilsumálum hjá Ási þar sem m.a. verði boðið upp á ýmsa viðburði tengda andlegri og líkamlegri líðan.
• Að leggja áherslu á vinnuvernd með góðu vinnuumhverfi, nauðsynlegum hjálpartækjum og leiðbeiningum með starfsstellingum.
• Að stuðla að því að aðbúnaður og hollustuhættir á vinnustað verði eins og best verði á kosið.

Prentvæn útgáfa (PDF)

 


Stjórnborð

Texti í sjálfgefinni stærðTexti í miðlungs stærðTexti í stórri stærðAuðlestrarhamur English

Flýtileiðir