Jafnréttisstefna
Jafnréttisstefna Áss styrktarfélags 2008 - 2015 byggir á þeim leikreglum samfélagsins að allir skulu vera jafnir fyrir lögum og njóta mannréttinda án tillits til kynferðis, kynhneigðar, trúarbragða, stjórnmálaskoðana, efnahags, uppruna, fötlunar, sjúkdóma eða annarrar stöðu í þjóðfélaginu.
Í því felst meðal annars:
• Að félagið stuðli að auknu jafnrétti fólks með þroskahömlun til vinnu og almennrar samfélagsþátttöku.
• Að allir eigi rétt á að komið sé fram við þá af virðingu og heiðarleika.
• Að siðareglur séu til fyrir félagið og starfsfólk þess.
• Að félagið vinni markvisst að því að jafna stöðu kynjanna í starfsemi sinni og stuðli að því að störf flokkist ekki í sérstök kvenna – og karlastörf.
• Að félagið skuldbindi sig til að vinna gegn kynbundnum launamun við ráðningu starfsfólks og í launaþróun.
• Að starf sem laust er skuli standa opið jafnt konum og körlum.
• Að félagið geri ráðstafanir til að koma í veg fyrir kynferðislega áreitni innan félagsins. Vísað til 17. greinar jafnréttislaga um kynferðislega áreitni.
• Að félagið virði rétt til trúfrelsis og trúariðkana svo fremi að þær skaði ekki trúfrelsi annarra.
• Að félagið virði rétt fólks til þátttöku í stjórnmálum og tjáningu stjórnmálaskoðana svo fremi að hún beinist ekki að skoðanafrelsi annarra.





