Kynningar- og styrktarstefna
Kynningar - og styrktarstefna Áss styrktarfélags 2008 - 2015 er að vekja athygli umhverfisins á starfsemi Áss og þeim sérstöku átaksverkefnum sem unnið er að, á hverjum tíma.
Að þiggja með þakklæti. Vekja áhuga fólks og fyrirtækja í þjóðfélaginu á að veita Ási styrki og hverslags stuðning til áframhaldandi starfsemi í þágu fólks með þroskahömlun.
Félagið lítur á það sem hluta af starfsemi sinni að láta til sín taka í samfélaginu, með því að styðja og styrkja þá, sem starfa í málaflokki fatlaðra eða vilja afla sér menntunar á þeim sviðum, sem félagið leggur áherslu á hverju sinni.
Í stefnunni felst m. a.:
Kynningarmál:
• Að kynna á hverjum tíma reglulega starfsemi félagsins.
• Að kynna sérstaklega öll átaks- og sérverkefni.
• Að á heimasíðu komi fram þegar félagið þiggur styrki og gjafir, sé það viðeigandi.
• Að bjóða styrktaraðilum kynningu á félaginu í því formi sem þeir óska eftir og mögulegt er að veita.
• Að bjóða gefendum að heimsækja þá staði sem styrkjum og gjöfum er beint til, eftir því sem aðstæður leyfa.
• Að aukin fræðsla um málefni fatlaðra sé öllum til góðs og því gott málefni að styðja
Þegnir styrkir:
• Að halda skrá yfir þá aðila sem styrkt hafa félagið, í hverju styrkurinn felst og hvenær honum var veitt viðtaka.
• Að ávallt sé kappkostað að sýna þakklæti í verki, eftir því sem við á.
• Að senda út þakkarbréf einu sinni á ári til allra þeirra er styrkt hafa félagið reglulega.
• Forstöðumenn hvers staðar séu í góðu sambandi við styrkveitendur og þakki fyrir sig eftir því sem við á.





