Beint á leiðarkerfi vefsins
ÁS STYRKTARFÉLAG

Öryggisstefna

Öryggisstefna Áss styrktarfélags 2008 - 2015 er að stuðla að öruggu umhverfi hvarvetna í þjónustu og aðstöðu félagsins eins og kostur er.

Umhverfið skal vera heilsusamlegt og öryggissjónarmiða gætt til hagsbóta fyrir þjónustuþega og starfsmenn. Hér er átt við öryggi í allra víðasta skilningi þess orðs. Leiðbeinandi reglur séu um umgengni húsa, tækja og annars búnaðar, varðandi notkun og meðhöndlun. Aðilar hvers staðar, kunni og viti hvernig bregðast á við aðstæðum hverju sinni. Æfingar er auka á öryggi og viðbragðshraða, (bruna, rýmingar, o.sfrv.), skulu vera minnst einu sinni á ári. Vinnustaðir, sambýli og íbúðir skulu uppfylla allar þær almennu kröfur og reglugerðir sem gerðar eru til vinnustaða og heimila fólks. Skyndihjálparkunnátta starfsmanna á að vera almenn og endurnýjuð reglulega.

 

Í öryggisstefnu Áss styrktarfélags felst m.a:


 
• Að gerð verði öryggishandbók fyrir vinnustaði og sambýli.
• Að efla viðbragðsáætlanir og fræðslu til þjónustuþega og starfsmanna um,
         - eldsvoða (notkun slökkvitækja, undankomuleiðir, rýmingaráætlun).
         - vatnstjón.
         - náttúruhamfarir (jarðskjálfta).
         - skyndihjálp.
• Að allir staðir Áss séu útbúnir öryggistækjum (reykskynjurum, slökkvitækjum, eldvarnarteppum, sjúkrakössum).
• Að stuðla að öryggi þjónustuþega og starfsmanna gagnvart ofbeldi.
• Að skipaður verði starfshópur til að skoða með markvissum hætti og koma á vinnureglum í tengslum við þvingun og valdbeitingu. (Sjá 6. grein laga um tvang og magt frá Noregi).
• Að starfsmenn séu á hverjum tíma upplýstir um öryggi síns vinnustaðar og séu meðvitaðir um almenn öryggisatriði við dagleg störf.
• Að gerðir verði gátlistar um öryggismál.

Prentvæn útgáfa (PDF)


Stjórnborð

Texti í sjálfgefinni stærðTexti í miðlungs stærðTexti í stórri stærðAuðlestrarhamur English

Flýtileiðir