Beint á leiðarkerfi vefsins
ÁS STYRKTARFÉLAG

Sjálfræðisstefna

snýst um að auka áhrif þjónustunotenda á þjónustuna, virða rétt einstaklingsins til sjálfræðis og til að hafa áhrif á eigið líf, til aukinna lífsgæða, ásamt því að standa vörð um og minna á réttindi hans og skyldur til samfélagsþátttöku og sjálfstæðis.

Lögð er áhersla á að samskipti starfsmanna og þjónustuþega skulu einkennast af gagnkvæmri virðingu, skilningi, réttlæti og ábyrgð. 

Í stefnunni felst m.a.:

  • Að virða sjálfræði fólks og standa vörð um velferð þess.

  • Að sjá til þess að fólk eigi fulla aðild að fundum þar sem þeirra persónulegu mál eru rædd og/eða ákvarðanir teknar.  “Ekkert um okkur án okkar”.

  • Að fólk hafi áhrif á og taki ákvarðanir í öllum þáttum daglegs lífs.

  • Að starfsfólk hafi og fylgi skýrum siðareglum um sjálfsákvörðunarrétt, sé meðvitað um mannréttindi allra einstaklinga og virði í hvívetna sjálfræði fólks sem þarfnast mikillar umönnunar.

  • Að starfsfólk sýni þjónustuþegum, kurteisi, virðingu og heiðarleika í hvívetna.

  • Að þjónustuþegi sé ekki beittur nauðung/þvingun á neinn hátt nema til að koma í veg fyrir sjálfskaðandi atferli í eigin garð eða við þriðja aðila.

  • Að bjóða upp á fræðslu sem miðar að því að upplýsa fólk svo það verði betur meðvitað í ákvarðanatökum um eigið líf.


Fyrirmyndarstofnun

Stjórnborð

Texti í sjálfgefinni stærðTexti í miðlungs stærðTexti í stórri stærðAuðlestrarhamur English

Flýtileiðir