Beint á leiðarkerfi vefsins
ÁS STYRKTARFÉLAG

Skammtímaþjónustustefna

Skammtímaþjónustustefna Áss Styrktarfélags 2008 - 2015 er að veita fjölskyldum fatlaðs fólks þann stuðning sem þarf til þess að allir geti verið heima svo lengi sem kostur er. Skammtímaþjónusta á að vera margbreytileg og hæfa öllum aldurshópum.  Þjónustan á að stuðla að auknum lífsgæðum með eflingu sjálfstæðis og sjálfsákvörðunarréttar og undirbúa einstaklinga undir að flytja að heiman þegar að þeim tímapunkti kemur.


Markmið þjónustunnar er:

• Að virða rétt einstaklingsins til sjálfstæðis ásamt því að veita einstaklingsmiðaða þjónustu.
• Að koma til móts við félagsþörf og auka félagslega færni þjónustunotanda.
• Að undirbúa fólk með þroskahömlun undir að flytja að heiman í fyllingu tímans.
• Að veita þjónustu í heimahús þegar eftir því er óskað.
• Að þjónustan sé miðuð við þarfir einstaklingsins og fjölskyldunnar.


Fjölskyldumiðuð skammtímaþjónusta felur í sér:

• Gæðaþjónusta þar sem lögð er áhersla á að veita einstaklingsmiðaða þjónustu í samstarfi við aðstandendur.
• Sólarhringsþjónusta þegar óskað er eftir því.
• Þjónusta heim: felur í sér stuðning við fjölskylduna kjósi hún að fá þjónustu veitta inná heimilið.

Prentvæn útgáfa (PDF)


Fyrirmyndarstofnun

Stjórnborð

Texti í sjálfgefinni stærðTexti í miðlungs stærðTexti í stórri stærðAuðlestrarhamur English

Flýtileiðir