Beint á leiðarkerfi vefsins
ÁS STYRKTARFÉLAG

Skjalastefna

Skjalastefna Áss styrktarfélags 2008 - 2015 er að varðveisla gagna og skjala sé með þeim hætti að þau séu til reiðu, á hverjum tíma, til handa hverjum þeim er þurfa á að halda og hafa heimild til. Í því felst að öll skjöl, stafræn sem og önnur, séu varðveitt eftir einföldu og skilvirku kerfi sem starfsmenn kunna á. Að með góðri skjalastefnu sé jafnframt stuðlað að góðri yfirsýn verkefna, skilvirkari rekstri og umhverfi.

 

Skjalastefna Áss styrktarfélags á að leiða til þess að:

 

• Skjöl séu aðgengileg.
• Skjalakerfið sé auðskiljanlegt.
• Skjöl séu meðhöndluð samkvæmt ákveðnu kerfi.
• Skjöl séu meðhöndluð samkvæmt lögum um persónuvernd.
• Góð yfirsýn fáist yfir verkefni og stöðu þeirra.
• Stuðla að bættu starfsmannaumhverfi
• Gera rekstur markvissari.
• Til séu skýrar reglur um aðgengi upplýsinga og hverjir hafi aðgang að þeim.
• Starfsmenn viti hvað má upplýsa og miðla af skjölum og upplýsingum til þriðja aðila.
• Flutningur og geymsla gagna hlíti ákveðnum skilgreindum reglum.

Prentvæn útgáfa (PDF)


Stjórnborð

Texti í sjálfgefinni stærðTexti í miðlungs stærðTexti í stórri stærðAuðlestrarhamur English

Flýtileiðir