Starfsmannastefna
Starfsmannastefna Áss styrktarfélags 2008 - 2015 er að hafa ætíð á að skipa hæfu og áhugasömu starfsfólki, búa í haginn fyrir það þannig að hæfileikar, frumkvæði og dugnaður hvers starfsmanns fái notið sín í hvívetna. Starfsaðstæður séu á þann veg að starfsfólk njóti þeirra og því líði vel. Sameiginleg stefna allra starfsmanna er að sýna hvert öðru umhyggju, skilning og að þeir hjálpist að við að taka á málum eftir því sem við á hverju sinni.
Í því felst meðal annars:
• Að starfsmaður sé sá sem er á launaskrá Áss.
• Að félagið hafi virka starfsmannastefnu.
• Að félagið hafi virka fræðslustefnu.
• Að félagið hafi virka fjölskyldustefnu.
• Að félagið og starfsmenn þess starfi samkvæmt siðareglum sem aðilar setja sér.
• Að félagið hafi virka heilsustefnu (heilsu- og mannræktarstefna).
• Að formleg starfsmannasamtöl séu viðhöfð.
• Að starfsmenn taki virkan þátt í stefnumótunar- og skipulagsvinnu félagsins.
• Að móttaka og fræðsla nýrra starfsmanna sé skilvirk og sjálfsögð.
• Að ástunda starfsþjálfun ásamt endur- og símenntun.
• Að möguleiki sé á flutningi milli starfa.
• Að starfslok séu gerð eins auðveld og kostur er.
• Að félagið kappkosti að vanda til starfsaðstöðu og góðs umhverfis.
• Að tryggja góðan farveg fyrir upplýsingagjöf til starfsmanna.





