Umhverfisstefna
Umhverfisstefna Áss styrktarfélags 2008 - 2015. Umhverfismál verða aldrei slitin úr samhengi við önnur mál. Hugsa þarf um áhrif mannsins á umhverfi sitt. Sú hugmyndafræði sem er við líði í þjóðfélaginu í dag byggir á sjálfbærri þróun, sem auðgar lífsgæði fólks án þess að rýra möguleika komandi kynslóða. Fólk þarf að skilja, þekkja og virða umhverfi sitt og náttúru til að gera sér grein fyrir sameiginlegri ábyrgð á ástandi og verndun þess. Með virkri þátttöku í umhverfisvernd leggjum við okkar að mörkum í sjálfbærri þróun samfélagsins.
Framkvæmdaáætlun.
Til þess að umhverfisstefnan nái fram að ganga þarf að vera almenn fræðsla um umhverfismál fyrir starfsfólk og þjónustuþega félagsins.
Gefa þarf út skýrar vinnureglur og nýta ítarlegar leiðbeiningar um flokkun og nýtingu úrgangs sem möguleikar eru til að endurnýta á einhvern hátt. Einnig er hægt að nota heimasíðu félagsins til að áminna, koma með ábendingar og hugleiðingar um umhverfisvernd.
Fyrir ársbyrjun 2009 ættu allar rekstrareiningar að vera byrjaðar:
• Að koma upp safnkössum fyrir lífrænt sorp.
• Að flokka dagblöð og annan pappír. Komið verði á flokkun dagblaða og öðrum pappír á öllum starfseiningum og farið með í endurvinnslugáma.
• Að drykkjarfernur verði skolaðar, þurrkaðar og farið með í endurvinnslugáma.
• Að bylgjupappír og öðrum pappa, verði safnað og skilað til Sorpu.





