Fræðsluáætlun 2009 - 2010
8. okt. Starfsdagur Lækjarás. Innra starf.
16. október. Starfsdagur Bjarkarás. Innra starf. Fyrirlestur: Öldrun ög fólk með þroskahömlun, Erna Einarsdóttir og Laufey Gissurardóttir.
20. og 21. október. Nýliðafræðsla kl.8:30-13:00. Staðsetning Skipholt 50c, dagskrá og skráningarblöð send út sérstaklega.
Október/nóvember. Lyngás, starfsdagur.
30. október. Skipulagsdagur hjá leiðbeinendum Áss vinnustofu.
10. nóvember. Bókhaldsnámskeið f. stjórnendur, deildarstóra og fulltrúa kl. 10.00-16.00. Skipholt 50c, Þóra M. Þórarinsdóttir.
3. desember. Alþjóðadagur fatlaðra. Félagsfundur, tími og dagskrá auglýst síðar.
4. desember. Starfsdagur stjórnenda og ráðgjafa, auglýst síðar.
8. 15. og 22. október, þrír hópar. Exel námskeið fyrir stjórnendur, deildarstjóra og fulltrúa kl. 9.00-13.00. Skipholt 50c. Þóra Þórarinsdóttir.
Skyndihjálp. Um að ræða námskeið Rauða Kross Íslands sem leiðbeinandi sníður að þjónustu við fatlaða. Fjallað er um meginatriði og grundvallarreglur skyndihjálpar. Námskeiðinu er skipt í þrjá áfanga sem taka 16 klst. Þeir sem ljúka þeim öllum fá skírteini frá Rauða Krossi Íslands. Leiðbeinandi er Laufey Gissurardóttir. Eftirfarandi dagsetningar eru:
-
13. október. Skyndihjálp I kl. 16:30 -19:30.Fjallað um meginatriði og grundvallarreglur skyndihjálpar, endurlífgun, aðskotahluti í öndunarvegi, flogaveiki og meðvitundarleysi.
-
27. október. Skyndihjálp II kl: 16:30 -19:30. Upprifjun frá skyndihjálp I. Fjallað um lost, blæðingar, sár, beinbrot og brunasár.
-
3. nóvember Skyndihjálp III kl: 16.:30 – 19:30. Upprifjun frá skyndihjálp I og II. Fjallað um bráðasjúkdóma, eitranir, rafmagnsslys, kal, ofkælingu, ofhitun, og sálræna skyndihjálp.
-
10. nóvember Skyndihjálp, upprifjun. 16:30-19:30. Námskeið fyrir þá starfsmenn sem hafa sótt skyndihjálp I, II og III. Endurnýja skírteini á tveggja ára fresti..
-
18. og 19. febrúar. Skyndihjálp, framhald. Upprifjun fyrir þá sem ekki geta nýtt sér almenn námskeið. Tveir hópar kl. 9.00-11.30..
Staðsetning námskeiða í upprifjun - skyndihjálp er í Skipholti 50c.. Vinsamlega skráið ykkur á þátttökulista á vinnustað ykkar, forstöðumenn koma listanum til skila á réttum tíma.5. febrúar.
Starfsdagur starfsmanna Áss vinnustofu, dagskrá kynnt síðar.12 . og 19.
Fræðsla fyrir starfsfólk í búsetu sem starfar með öldruðu fólki kl. 13.00-16.00, tvö skipti. Fyrirlesarar, Erna Einarsdóttir og Laufey Gissurardóttir.
Febrúar/apríl. Námskeið fyrir þá starfsmenn sem ekki geta nýtt sér almenn námskeið.
Sjálfstyrking fyrir konur, 5 skipti kl. 9.00-10.00. Nánar auglýst síðar.
15. og 16. apríl og 2. og 3. júní. Námskeið fyrir öryggistrúnaðarmenn og öryggisverði á vegum Vinnueftirlitsins kl. 08.-16.00.
27. apríl. Sameiginlegur fræðsludagur starfsfólks Áss styrktarfélags, Starfsstellingar, umhirða og umgengni hjálpartækja kl. 16.30-18.30 starsetning, Bjarkarás Stjörnugróf
12. maí. Vinnudagur forstöðufólks, ráðgjafa og stjórnar 16.00-19.30. Nánar auglýst síðar.
8. og 9. júní. Nýliðafræðsla. Staðsetning Skipholt 50c, dagskrá og skráningarblöð send út.
-
Efni í boði á starfsdaga og/eða starfsmannafundi er m.a.:
-
Menning á vinnustöðum, Anna Lilja Magnúsdóttir ráðgjafarþroskaþjálfi
-
Gentle teaching, Guðrún Helgadóttir, yfirþroskaþjálfi
-
Öldrun og fólk með þroskahömlun, Erna Einarsdóttir/Laufey Gissurardóttir
-
Kynningar á BA verkefnum og meistaraverkefnum sem varða starfið
-
Kynning á félagslegum tilboðum fyrir aldraða, Guðbjörg Elsa Sveinbjörnsdóttir félagsráðgjafi
-
SFR starfsmenn að kynna sér námskeið á vegum fræðslusetursins Starfsmennt á netfangi www.simennt.is
-
Fræðsla á vegum F.F.A. sem auglýst er reglulega m.a. á heimasíðu félagsins www.styrktarfelag.is
-
Fyrirlestrar fyrsta fimmtudags hvers mánaðar á vegum rannsóknustofu í öldrunarfræðum kl.12:15 – 13:00. Landakoti við Túngötu, salur 7. hæð.
Annað: Starfsdagar dreifast á veturinn og eru stundum sameiginlegir að einhverju leiti. Stutt fræðsluinnlegg eru á starfsmannafundum, þeir eru einnig nýttir til fræðslu og skipulagsvinnu. Ábendingum um efni og óskir um sérsniðna fræðslu skal koma til fræðslunefndar erna@styrktarfelag.is. Í nefndinni sitja Erna Einarsdóttir starfsmannastjóri, Heba Bogadóttir forstöðumaður Háteigsvegi og Hrefna Þórarinsdóttir yfirþroskaþjálfi í Lyngási. Hver atburður er auglýstur sérstaklega þegar nær dregur.
25. september 2009 EE/HB/HÞ





