Beint á leiðarkerfi vefsins
ÁS STYRKTARFÉLAG

Hjálpartæki sem styðja við sjálfstæði fólks

(cognitive hjálpartæki)

Hjálpartækjamiðstöð TR (HTM) og Ás styrktarfélags starfa saman að verkefni um notkun hjálpartækja til að styðja fólk með þroskahömlun í sjálfstæðri búsetu. Verkefnið hófst fyrir rúmum tveimur árum að frumkvæði HTM í tilefni af ári fatlaðra.  Tilgangur þess er að kanna þörf og gagnsemi ákveðinna hjálpartækja fyrir fólk með þroskahömlun í sjálfstæðri búsetu. Prófuð eru minnis-, öryggishjálpartæki og merkibúnaður sem auðvelda þátttakendum að framkvæma athafnir daglegs lífs og stuðla að sjálfstæði þeirra. Væntingar til verkefnisins eru að tækin verði til þess að auka sjálfstæði og lífsgæði hvers einstaklings.  Samantekt og niðurstöður eru áætlaðar í lok árs 2006.

 

 


Stjórnborð

Texti í sjálfgefinni stærðTexti í miðlungs stærðTexti í stórri stærðAuðlestrarhamur English

Flýtileiðir