Könnun á högum fólks með þroskahömlun 45 ára og eldra
|
Í tilefni af Evrópuári jafnra tækifæra ákvað félagsmálaráðuneytið að veita styrki til félagasamtaka úr verkefnasjóði til verkefna sem hafa það að markmiði að vinna að almennri og víðtækri vitundarvakningu í samfélaginu um mismun á grundvelli kyns, öldrunar, kynþáttar, fötlunar, kynhneigðar og trúar. Ás styrktarfélag hlaut styrk til að framkvæma könnun á högum fólks með þroskahömlun 45 ára og eldra. Könnunin náði til landsins alls, sendir voru út spurningalistar og tekin viðtöl. Einnig var settur af stað rýnihópur með fötluðum. Markmið með könnuninni var að fá upplýsingar og skoða aðstæður og lífsgæði fólks með þroskahömlun. Sérstaklega var horft á búsetu, dagþjónustu/atvinnu, félagslíf og fjölskyldutengsl. Mikilvægt er að horfa til framtíðar og fá fram aðstæður og óskir um hvernig best sé að skipuleggja umhverfi og þjónustu á Íslandi. Þann 3. desember á síðastliðnu ári, á degi fatlaðra, var farið yfir helstu niðurstöður sem fengust úr könnuninni á haustfundi félagsins sem haldinn var á Grand Hóteli. Til nánari kynningar:
|
|
|
|
Í rýnihópnum voru Sigurjón Grétarsson, Ingibjörg Sveinbjörnsdóttir, Eygló Ebba Hreinsdóttir Jón Úlfar Líndal, María Sveinbjörnsdóttir og Ívar Árnasson sem vantar á myndina.
Umsjónarmenn voru Erna Einarsdóttir og Laufey Gissurardóttir. |





