Ég er til, þess vegna elska ég
Ás styrktarfélag hefur síðastliðin 2 ár tekið þátt í verkefni sem nefnist „Ég er til þess vegna elska ég“. Verkefnið er að hluta til fjármagnað af Evrópusambandinu undir merkjum Socrates- Grundtvig áætluninnar. Verkefnið er nýtt af nálinni, og hafa nokkur Evrópulönd (Ítalía, Bretland, Spánn, Frakkland, Rúmenía og Ísland) hafa unnið að gerð þess í sameiningu. Í tveimur þátttökulöndum hefur fólk með þroskahömlun starfað að gerð þessa efnis sem fullgildir samstarfsaðilar. Með samstarfinu hafa þessar Evrópuþjóðir deilt reynslu sinni, þekkingu og þeim kennslugögnum um kynferði og sambönd fólks sem þjóðirnar búa yfir.
Tilgangur verkefnisins „Ég er til, þess vegna elska ég“ er að efla sjálfsvitund fullorðins fólks með þroskahömlun um sjálfsmynd þess og kynferði. Fólk með þroskahömlun á rétt á að lifa kynlífi, mynda sambönd, vera í sambúð og eignast börn eins og aðrir borgarar Evrópu. Raunveruleikinn er samt sá að réttur þeirra takmarkast af mismunandi aðstæðum (samanber; viðhorf samfélagsins, umhyggja fjölskyldu og stuðningsaðila, skortur á fræðslu á léttlesnu/myndrænu formi o.f.l.).
Verkefnið var tvískipt: Annars vegar var gerð könnun á hver væri reynsla fólks af því að kenna kynfræðslu. Jafnframt hver þörfin er fyrir frekara kennsluefni, auk þess sem tekin voru 180 stöðluð viðtöl við fólk með þroskahömlun til að kanna þekkingu þeirra. Eftir að niðurstöður úr gagnaöfluninni lágu fyrir var framleiddur geisladiskur. 90 hópar prófuðu diskinn með 300 þátttakendum hjá mismunandi stofnunum og félögum í þátttökulöndunum sex. Diskurinn var lagfærður út frá athugasemdum og ábendingum þátttakenda eftir bestu getu.
Afurð verkefnisins
Geisladiskurinn var hannaður í þeim tilgangi að geta nýst fólki með þroskahömlun, fagfólki og leiðbeinendum.
Efnisinnihald disksins er eftirfarandi:
- Leiðbeiningar um kynfræðslu
- Orðabók
- Heimildaskrá
- Réttindi fólks með þroskahömlun til að stunda kynlíf
- Sögur og myndir (Að njóta ásta, Að búa saman, Að vera öruggu og Viljum við eignast barn?).
Handbókin inniheldur ýmsar upplýsingar um þætti sem þarf að hafa í huga varðandi fræðslu um kynlíf og ástarsambönd sem einkum er ætlaðar fagfólki og aðstandendum fólks með þroskahömlun. Auk þess má finna gagnagrunn þátttökulandanna um þetta efni.
Upplag disksins er takmarkað en ætlunin er að dreifa efninu á 30 staði m.a. á Svæðisskrifstofur, félagsþjónustur, hagsminasamtök og skóla. Áhugasamir geta fengið efnið að lánað á skrifstofu félagsins. Frekari upplýsingar um verkefnið gefur María Jónsdóttir félagsráðgjafi, sem er umsjónarmaður og ábyrgðaraðili verkefnisins á skrifstofu félagsins eða á tölvupósti maria@styrktarfelag.is
Ítarefni:
Parnership and marriage in Down syndrome
Sexuality and Individuals in Down syndrome





