Sumardvöl 2010
Sumarsæla á Suðurlandi
Í sumar býður Ás styrktarfélag upp á sumardvöl á Suðurlandi. Eins og sl. sumar höfum við fengið aðstöðu í frábæru húsi Bergmáls sem er í landi Sólheima í Grímsnesi.
Aðbúnaður innandyra er frábær, öll herbergi með eigin wc og sturtu. Einnig er sameiginleg aðstaða rúmgóð og býður upp á óendanlega möguleika.
Dagskrá sumardvalarinnar verður fjölbreytt að vanda og lögð áhersla á að njóta samveru og útivistar. Leitast er við að virkja frumkvæði þátttakenda, kynna fyrir þeim dagskrártilboð og mæta óskum þeirra.
Staðsetningin býður upp á óteljandi möguleika til dagsferða og heimsókna á fallega og skemmtilega staði.
Boðið verður upp á vikudvalir á tímabilinu 12. júlí- 26. júlí.
1. vika 12. - 19. júlí
Sumardekur og útivist. Áhersla á gönguferðir, sundferðir, boccia og útiveru. Farið verður á kaffihús og í lautarferð. Bíókvöld, bingókvöld og kvöldvaka!! Óvissuferð!!!
2. vika 19. - 26. júlí
Sumardekur og myndlist. Áhersla á dagsferðir, dekur og myndlist!!! Þátttakendur geta tekið þátt í námskeiði í málun með vatnslitum. Myndlistarsýningar heimsóttar. Stoppað á kaffihúsum og söfn heimsótt. Bíókvöld, bingókvöld og kvöldvaka. Óvissuferð!!!!
Umsóknarfrestur er til 20. mars og verður umsóknum svarað fyrir páska.Þátttökugjald er kr. 75.000 pr.vika.
Innifalið eru ferðir, gisting og fæði.
Umsóknareyðublöð er hægt að nálgast á hér.
Nánari upplýsingar veitir Þóra Tómasdóttir í síma 699-1138 netfang thoratomasd@gmail.com





