Skip to main content
search
0

Vinnumálastofnun tekur á móti öllum umsóknum um verndaða vinnu, hæfingu og dagþjónustu á öllu landinu.

Hægt er sækja um á eftirtöldum stöðum á höfuðborgarsvæðinu:

  • Ás styrktarfélag, Vinna og virkni
  • Ásgarður í Mosfellsbæ
  • Bæjarhraun í Hafnarfirði
  • Dalvegur í Kópavogi
  • Geitungarnir í Hafnarfirði
  • Gylfaflöt í Reykjavík
  • Iðjuberg í Reykjavík
  • Ópus vinnu- og virknimiðstöð i Reykjavík
  • Skálatún í Mosfellsbæ
  • Örvi í Kópavogi

Sótt er um á vef Vinnumálastofnunar

www.vinnumalastofnun.is/umsoknir/umsokn-um-verndada-vinnu-haefingu-og-virknithjalfun

Ráðgjafar vinnumálastofnunar boða umsækjandann í viðtal.

Að því loknu er umsóknin send til samráðs-teymis sem er sameiginlegt með öllum sveitarfélögunum á höfuðborgar-svæðinu.

Tillögur teymisins um úthlutun eru sendar áfram til sveitafélags umsækjanda sem sendir tillöguna í bréfi til umsækjanda og ráðgjafa hans á þjónustumiðstöð.